Gunnar Nelson féll úr keppni í gær í ADCC bardagakeppninni sem haldin er í Barcelona um helgina en þetta er sterkasta mót í heimi í uppgjafarglímu. Gunnar féll eftir naumt tap gegn fyrrum heimsmeistara og Ameríkumeistara, Bandaríkjamanninum James Brasco.
Eftir venjulegan leiktíma og tvöfalda framlengingu voru keppendur hnífjafnir og því réð dómaraúrskurður úrslitum, að því er segir í fréttatilkynningu. Flestir héldu að Gunnari yrði veittur sigurinn þar sem andstæðingur hans hafði tvisvar sinnum fengið aðvörun fyrir sóknarleysi en Gunnar aldrei. Öllum á óvörum úrskurðuðu dómararnir hins vegar Bandaríkjamanninum í vil. Var það mál manna að þar hefði ferill hans haft mest áhrif en ekki frammistaðan gegn Íslendingnum unga.
James Brasco féll síðan úr keppni eftir jafn nauman ósigur gegn sigurstranglegasta keppanda flokksins, Braulio Estima, margföldum heims- og Evrópumeistara. Gunnar getur því vel við unað og stóð sig frábærlega gegn afar erfiðum andstæðingi.
Gunnar heldur á mánudag til New York þar sem hann tekur þátt í Pan Amercan mótinu sem fram fer í New York um næstu helgi. Mótið í New York er eitt af þremur stærstu mótum í heimi í uppgjafarglímu.