Mjölnismenn sendu keppendur á opna danska meistaramótið (Danish Open) og Íslendingarnir gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér 9 verðlaun á mótinu. 4 gull, 1 silfur og 4 brons.
Sighvatur Helgason kom sá og sigraði sigraði -88kg flokkinn og opna flokkinn (fjólublátt belti). Sighvatur náði uppgjafartaki á alla sem hann keppti við nema Mjölnismanninn Þráinn Kolbeinsson, en mættust þeir í undanúrslitum í opna flokknum. Sigurjón Viðar Svarvarsson náði gulli í +100 (blátt belti) og í úrslitum sigraði hann keppanda sem var hátt í 40kg þyngri en hann sjálfur. Þráinn Kolbeinsson sigraði -94kg flokkinn og var í þriðja sæti í opna flokknum (fjólblátt belti). Bjarni Kristjánsson stóð sig eins og hetja í -94 (blátt belti) og tók silfur. Auður Olga vann svo til bronsverðlauna í -64kg (fjólublátt).