Þann 3. nóvember 2007 var BJJ Samband Íslands (BJÍ) stofnað. Þetta er rökrétt framhald af þeirri útbreiðslu og áhuga sem hefur orðið í BJJ á Íslandi og er meginhlutverk BJÍ að stuðla að frekari útbreiðslu og keppnishaldi á íþróttinni. Aðildarfélög að BJÍ eru félögin Mjölnir og Fjölnir í Reykjavík sem og Fenrir á Akureyri. Haft var samband við aðra sem æfa BJJ en þeir sýndu ekki áhuga á samstarfi eins og staðan er í dag en nýjum félögum er ávallt fagnað. Einnig skal hafa í huga að æfingahópur er á Egilstöðum sem hefur þó ekki enn félag á bakvið sig.
Stjórn BJÍ:
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, formaður.
Árni Þór Jónsson, ritari
Sigursteinn Snorrason, gjaldkeri
Haraldur Óli Ólafsson, meðstjórnandi.
Aðalhlutverk BJÍ er að halda árlegt Íslandsmeistarmót í BJJ. Stefnt er að halda það í mars nk. Samin hafa verið lög BJÍ. Samdar voru verið keppnisreglur sem notaðar voru á Setningarmóti BJÍ 24. nóvember 2007.